Hvað getum við gert?

Hvað getum við gert? Flytjandi: Barnakór Vídalínskirkju Lag: Ingvar Alfreðsson Texti: Barnakór Vídalínskirkju og Ingvar Alfreðsson Hljóðfæraleikur og upptökur: Ingvar Alfreðsson Hljóðblöndun og hljómjöfnun: Ásmundur Jóhannsson Myndband: Hilmir Berg Ragnarsson Kórstjórn: Ingvar Alfreðsson og Jóhanna Guðrún Jónsdóttir Tekið upp haustið 2025. Gefið út 10. maí 2026 Texti lagsins: Hvað getum við gert til að einhverjum líði betur? Hvað getum við sagt þegar einhver á erfiðan dag? Hvað getum við gert þegar einhver til eineltis hvetur? Rísum upp, réttum fram hjálparhönd Við getum faðmað og þurrkað tárin Við getum brosað og boðið hjálp Við getum huggað og læknað sárin og lífinu breytt. Við getum leikið og haft svo gaman Við getum myndað ný vinabönd Við getum elskað og verið saman og hjörtu' allra snert Það getum við gert Hvað getum við gert þegar fordómar eru til staðar? Hvað getum við sagt þegar skilið er útundan? Hvað getum við gert þegar hegðun og framkoma skaðar? Rísum upp, réttum fram hjálparhönd Við getum faðmað og þurrkað tárin Við getum brosað og boðið hjálp Við getum huggað og læknað sárin og lífinu breytt. Við getum leikið og haft svo gaman Við getum myndað ný vinabönd Við getum elskað og verið saman og hjörtu' allra snert Það getum við gert Það getum við gert