Kennsla Jesú 1–Sæluboð Fjallræðunnar

Sagnaarfur Biblíunnar II – Kennsla Jesú. Dr. Sigurvin Lárus Jónsson Sæluboð Fjallræðunnar Áhrifamesti kennari mannkynssögunnar er án nokkurs vafa Jesús frá Nasaret, en þriðjungur mannkyns tilheyrir trúarhreyfingum sem kenna sig við hann. Elstu heimildir okkar um Jesú er að finna í ritum Nýja testamentisins, en það safnar bréfum og sögum sem fylgjendur hans skráðu og fjalla um hver Jesús var, hvað hann gerði og hvað hann kenndi. Fræðimenn á sviði nýjatestamentisfræða hafa dagsett þau 27 rit frá miðri fyrstu öld og fram yfir aldamótin, en frá annarri öld eru jafnframt varðveitt fjölmargar frásagnir af ævi og kennslu Jesú sem ekki eru í Biblíunni sjálfri. Kennsla Jesú er þar varðveitt, annarsvegar í ritum sem við eigum varðveitt, á borð við Tómasarguðspjall, og hins vegar í slitrum sem fundist hafa og erfitt er að staðsetja. Nýja testamentið hefst á Matteusarguðspjalli og samanburðarrannsóknir á guðspjöllunum hafa leitt í ljós að heimildir þess eru líklega af þrennum toga, höfundur þess þekkir og notar Markúsarguðspjall, hann deilir efni með Lúkasarguðspjalli sem inniheldur ummælahefð Jesú—elstu þekktu ummælahefðinni—, og loks býr hann yfir sérefni sem dregur fram þær áherslur sem einkenna guðspjallið. Kennsla Jesú er í forgrunni í Mattheusarguðspjalli og eftir að höfundur hefur útlistað ættartengsl, fæðingu og upphafið á þjónustu Jesú í fjórum köflum, stígur Jesús upp á fjall í þeim fimmta og flytur Fjallræðuna, þekktustu ræðu mannskynssögunnar. Fjallræðan hefst á ljóðrænum texta, sæluboðunum, en á grísku er hrynjandi textans enn skýrari en í þýðingum: Μακάριοι οἱ πτωχοὶ τῷ πνεύματι, ὅτι αὐτῶν ἐστιν ἡ βασιλεία τῶν οὐρανῶν. Sæl hin fátæku andans, því þeirra er konungsríki himnanna. μακάριοι οἱ πενθοῦντες, ὅτι αὐτοὶ παρακληθήσονται. Sæl hin syrgjandi, því að þau munu hugguð verða. μακάριοι οἱ πραεῖς, ὅτι αὐτοὶ κληρονομήσουσιν τὴν γῆν. Sæl hin mildu, því þau munu erfa jörðina. μακάριοι οἱ πεινῶντες καὶ διψῶντες τὴν δικαιοσύνην, ὅτι αὐτοὶ χορτασθήσονται. Sæl hin svöngu og þyrstu eftir réttlæti, því þau munu södd verða. μακάριοι οἱ ἐλεήμονες, ὅτι αὐτοὶ ἐλεηθήσονται. Sæl hin miskunnsömu, því þeim verður miskunnað. μακάριοι οἱ καθαροὶ τῇ καρδίᾳ, ὅτι αὐτοὶ τὸν θεὸν ὄψονται. Sæl hin hjartahreinu, því þau munu Guð sjá. μακάριοι οἱ εἰρηνοποιοί, ὅτι αὐτοὶ υἱοὶ θεοῦ κληθήσονται. Sæl þau sem ástunda frið, því þau verða kölluð Guðs börn. μακάριοι οἱ δεδιωγμένοι ἕνεκεν δικαιοσύνης, ὅτι αὐτῶν ἐστιν ἡ βασιλεία τῶν οὐρανῶν. Sæl hin ofsóttu vegna réttlætis, því þeirra er konungsríki himnanna. μακάριοί ἐστε ὅταν ὀνειδίσωσιν ὑμᾶς καὶ διώξωσιν καὶ εἴπωσιν πᾶν πονηρὸν καθ’ ὑμῶν [ψευδόμενοι] ἕνεκεν ἐμοῦ. Sæl eru þið, þegar þið eruð óvirt og ofsótt og öllu illu logið upp á ykkur. χαίρετε καὶ ἀγαλλιᾶσθε, ὅτι ὁ μισθὸς ὑμῶν πολὺς ἐν τοῖς οὐρανοῖς· οὕτως γὰρ ἐδίωξαν τοὺς προφήτας τοὺς πρὸ ὑμῶν. Gleðist og fagnið, því laun ykkar á himnum eru mikil. Því þannig ofsóttu þau spámennina á undan ykkar. Mig langar að draga fram þrennt í þessum magnaða texta sem raunar einkennir alla kennslu Jesú. Fyrst er hugmyndin um konungsríki Guðs, eða eins og hún birtist í Matteusarguðspjalli, konungsríki himnanna. Konungar eru þeir sem hafa veraldleg völd og máttur þeirra birtist í hervaldi og auðvaldi, leiðir sem frá fornöld til okkar daga hafa reynst kúgunartæki valdshafa, og konungsríki–βασιλεία–lýsir áhrifasvæði þeirra. Fjallræðan rammar inn sæluboðin með „því þeirra er konungsríki himnanna“ og segir það tilheyra „hinum fátæku andans“ og „hinum ofsóttu vegna réttlætis“. Sú hugmynd að konungar eigi sé himneska fyrirmynd er þekkt sem réttlæting á valdi konunga á öllum tímum en í kennslu Jesú er því öfugt farið. Konungsríki Guðs, bæði hér og nú og handan þessa lífs, er eðlisólíkt því valdabrölti sem fylgir veraldlegu valdi. Hin fátæku eru útvalin af Guði og eru upphafin í allri kennslu Jesú, og voru og eru meginviðfangsefni kirkjunnar. Hægt er að skilja „hin fátæku andans“ sem vísun í hugarfar en stærra samhengi textans sýnir að hér er vísað í þau sem eru fátæk af veraldlegum gæðum en búa yfir anda sem hina auðugu skortir. Ríki Guðs verður ekki mælt í hervaldi eða auðvaldi, heldur í hinu gagnstæða–því sem lýst er í hinum sæluboðunum: mildi, réttlæti, miskunnsemi, hreinu hjarta og því að ástunda frið.