Sama viðtalið: Baldvin og Patrekur ræða um viðtölin við Ragnhildi Helgadóttur

Baldvin Þór Bergsson og Patrekur Jaime tækla ESB umræðuna, hvor með sínum hætti. Í hverri viku fá þeir til sinn sama viðmælandann, í sitt hvort viðtalið í von um að ólíkar nálganir þeirra geti hjálpað hlustendum að svara stóru spurningunni: Á að hefja á ný viðræður um aðild Íslands að Evrópusambandinu? Ragnhildur Helgadóttir, lagaprófessor, var ein þeirra sem sat í samningahópi vegna viðræðna við ESB kjörtímabilið 2009-2013. Baldvin og Patrekur tóku sitt hvort viðtalið við hana þar sem ýmislegt áhugavert kom fram. Hér ræða þeir sín á milli um það helsta sem kom fram.