Sama viðtalið: Baldvin ræðir við Ragnhildi Helgadóttur

Baldvin Þór Bergsson og Patrekur Jaime tækla ESB umræðuna, hvor með sínum hætti. Í hverri viku fá þeir til sinn sama viðmælandann, í sitt hvort viðtalið í von um að ólíkar nálganir þeirra geti hjálpað hlustendum að svara stóru spurningunni: Á að hefja á ný viðræður um aðild Íslands að Evrópusambandinu? Ragnhildur Helgadóttir, lagaprófessor, var ein þeirra sem sat í samningahópi vegna viðræðna við ESB kjörtímabilið 2009-2013. Í þættinum er rætt um reynsluna af því ferli, hvaða lærdóm við getum dregið af því, muninn á EES og ESB og nauðsyn stjórnarskrárbreytingar ef Ísland á að ganga í ESB. #esb #þjóðaratkvæðagreiðsla #island #fréttir #rúv #baldvinþórbergsson #ragnhildurhelgadottir