2024 Grímsey - eggjaferð

Mér var boðið til Grímseyjar til að síga eftir eggjum. Mér lék forvitni á að sjá hvort aðferðir og venjur Grímseyinga væru mjög frábrugðnar þeim sem ég hef vanist í Drangey, ég var fljót að þiggja boðið. Ég sá ekki eftir þessu ferðalagi, þarna kynntist ég góðu fólki og átti virkilega skemmtilega daga. Ég mun pottþétt fara aftur.