Ég man

Lagið Ég man er ástarballaða. Ari Ólafsson syngur lagið með sinni undurfögru og blíðu rödd. Textinn fjallar um pilt sem hittir stúlku og hann verður yfir sig hrifinn af henni á augabragði. Hann getur ekki gleymt henni og hugsar stöðugt um hana. Hann ákveður því að reyna að hafa upp á henni, sem honum tekst að lokum. Þegar hann hitti hana aftur þá var hrifningin jafn mikil og þegar hann sá hana fyrst. Lag og texti: Björgvin Þ. Valdimarsson Hljóðfæraleikarar: Karl Olgeirsson píanó, hljóðgervill, kassagítar og harmonika Róbert Þórhallsson bassagítar Ólafur Hólm Einarsson slagverk Strokkvartettinn Siggi en hann skipa, Una Sveinbjarnardóttir, Helga Þóra Björgvinsdóttir, Þórunn Ósk Marinósdóttir og Sigurður Bjarki Gunnarsson