Skipverjar sóttir af þyrlusveit Landhelgisgæslunnar
Áhöfnin á TF-EIR, þyrlu Landhelgisgæslunnar, sótti tvo slasaða skipverja í erlent flutningaskip á laugardag sem statt var skammt norður af Keilisnesi. Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar barst beiðni um aðstoð vegna slyss í vélarúmi flutningaskipsins og var ákveðið að senda þyrlu Landhelgisgæslunnar til að hægt væri að koma mönnunum undir læknishendur. Vegna tungumálaörðugleika var túlkur fenginn til að aðstoða áhöfnina áður en þyrlan tók á loft til að fara yfir hvernig staðið yrði að hífingum. Þegar þyrlan kom á vettvang var sigmanni, lækni, tveimur hífingarbörum og búnaði var slakað um borð í skipið. Þyrlan fór frá skipinu meðan áhöfnin athafnaði sig um borð og hlúði að skipverjunum. Þeim var komið fyrir á grjónadýnu í hífingarbörum og undirbúnir til flutnings. Að því búnu fór þyrlulæknirinn aftur um borð í þyrluna og svo voru skipverjarnir tveir hífðir um borð. Sigmaðurinn fór síðastur frá flutningaskipinu. Meðfylgjandi myndband gefur góða innsýn í störf þyrlusveitarinnar og þar má sjá nokkur brot frá frá útkallinu frá sjónarhorni sigmannsins. Skipverjarnir voru fluttir á Landspítalann í Fossvogi. Á laugardagskvöldið var áhöfnin aftur kölluð út til að annast sjúkraflutning frá Vestmannaeyjum en vegna veðurs gat sjúkraflugvél ekki Lent í Eyjum. Áhöfnin á TF-GRO, þyrlu Landhelgisgæslunnar, tók á loft frá Reykjavíkurflugvelli á ellefta tímanum og var komin aftur til baka rúmri klukkustund síðar.

Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar og áhöfnin á Freyju æfa sjóbjörgun

Satisfying Videos of Workers Doing Their Job Perfectly & Hilarious Fails #1 #fail #construction

Landhelgisgæsla Íslands í 100 ár

Chaos in Poland! Storms and high waves destroy Krynica Morska Beach, Piaski Beach,

Austur í fjöru 19 júní 2026

If These Train Moments Weren’t Filmed, Nobody Would Believe Them

When Wild Animals Get Way Too Close 😱

Jaw-Dropping Tractor Fail Compilation 2025 | Extreme Heavy Equipment Driving #Part 8

Harvesting Many Big Fish at the Pond | Taking a Full 3-Wheeled Truck to Market

Slökkvistörf með þyrlu - Kennslumyndband

Never Buy a Water Pump Again! A 65-Year-Old Plumber Made His Own Water Pump Using PVC Pipes | Update

Unbelievable Smart Workers | Genius Construction Skills, Crazy Fails | Part 104 #construction #smart

Móttaka þyrlu á landi - Kennslumyndband fyrir viðbragðsaðila

Incredible Safari Moments Caught on Camera

Slökkvibyssur varðskipsins Freyju (FiFi)

This Is the Funniest Cat You’ll See Today 😂 30 Minutes of Laugh

Unbelievable Workers | Working with Talented Engineers #46 #fail #adamrose #smartworkers

Ukraina har isolerat Krim från Ryssland – Putin står maktlös

Mest 2026 | Vredo VT7028.3 op dubbellucht | 32000 Liter | brede sproeiboom | MAN | Gülle fahren

