Ný-rokk í Reykjavík

Heimildarmynd frá 1994 eftir Harald Sigurjónsson. Myndin fjallar um hljómsveitirnar/tónlistarfólkið Curver, Maus, 2001 og Kolrassa krókríðandi. Myndin var gefin út af Smekkleysu á VHS í 20 eintökum en hefur aldrei verið sýnd neinstaðar. Myndin hefur verið ófáanleg í mörg ár og örfáir hafa séð hana hingað til. Þetta var fyrsta myndin mín og því algjörlega barn síns tíma. Hún var tekin upp á S-VHS-c og klippt á milli tveggja S-VHS tækja og gæðin eru eftir því. Njótið!