G. Bizet (1838-1875) - Serenade [Þakklætismyndband]

Georges Bizet (1838-1875) La Jolie Fille de Perth - Serenade de Smith (1866) Konstantín Shcherbak - mandolin / mandólín Ingibjörg Jóna Halldórsdóttir - piano / píanó Þetta myndband var gert til að þakka öllum þeim sem studdu söfnun til að kaupa spjaldtölvur fyrir öldrunardeildir Landspítalans, á Karolina Fund, sem komið var af stað fljótlega eftir að COVID-19 heimsfaraldurinn hófst á Íslandi, 2020. Flytjendur eru starfsmenn öldrunarlækningadeilda Landspítalans. Ingibjörg Jóna, hjúkrunarfræðingur spilar á píanó og Konstantín, læknir, spilar á mandólín. Innilegar þakkir! Ykkar framlag skipti skjólstæðinga okkar og fjölskyldur þeirra máli!