Árshátíð Varmahlíðarskóla 2022: Með allt á hreinu!

Þann 6. apríl 2022 sýndu árgangarnir 2006, 2007 og 2008 söngleikinn Með allt á hreinu í Menningarhúsinu Miðgarði. Handrit er eftir Ágúst Guðmundsson en stílfært og staðfært af Bryndísi Erlu Guðmundsdóttur og ýmsu starfsfólki skólans; leikstjóri er Íris Olga Lúðvíksdóttir. Á sýningardegi bilaði hljóðborð Miðgarðs og dregur tónlistin dám af því.