Alltaf hægt að nota góða exi

Kvöldvaktin mætti galvösk með þotur út á völl og auka pinna fyrir nefgírinn hjá Magga. Ekki reyndist unnt að nota auka pinnann svo brugðið var á það ráð að nota „fjölnota verkfærið“ sem Steve Holland ánafnaði klúbbnum um árið til að koma gamla pinnanum í nothæft lag. Skemmst er frá því að segja að eftir smá bras við að ná stellinu í sundur þá hafðist að rétta pinnann af á stálinu.