Hafnarfjarðartogarinn Maí GK 345 -15 júní 2026

Um borð voru 31–32 menn. 11–12 menn voru á hvorri vakt. Allt þetta fólk þurfti til að taka troll á síðutogara. Skipið var selt til Noregs og gert út þar í nokkur ár í kringum norska olíuiðnaðinn. Einhver þarf að skutla til kallanna á olíuborpöllunum mjólkinni, smjörinu, brauðinu, álegginu, kjötinu, kartöflunum og öllu hráefni í salatið, hvort sem er fiski eða kjöti. Aðeins einu sinni svo vitað sé kom skipið til Íslands og lá það þá í Straumsvíkurhöfn. Í hvaða erindum það var veit ég ekki en mig minnir að það hafi komið frá Kanada. Var þá fátt sem minnti á togarann Maí GK.