#70. - Fellir mál Ásthildar Lóu ríkisstjórnina? Ögurstund hjá Framsókn
Ekkert kemst á dagskrá þennan fréttadaginn annað en afsögn barna- og menntamálaráðherra. En hver verður eftirleikur málsins? Er ríkisstjórnin í hættu? Hefur orðspor Íslands skaðast á erlendum vettvangi? Svara við þessum spurningum verður leitað á vettvangi Spursmála þennan föstudaginn. Til þess að ræða pólitíkina í málinu mæta þau til leiks, Diljá Mist Einarsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og Snorri Másson, þingmaður Miðflokksins. Lögmenn rýna í stöðuna Að lokinni þeirri umræðu eru þeir væntanlegir á vettvang lögmennirnir Sigurður G. Guðjónsson og Árni Helgason, sem einnig er varaþingmaður. Þeir ætla að ræða annað stórt mál sem skekið hefur íslenskt samfélag síðustu vikur og varðar einnig Ásthildi Lóu Þórsdóttur, fráfarandi ráðherra. Í ljós hefur komið að Arion banki afhenti henni og eiginmanni hennar fasteign í Garðabæ árið 2019 langt undir markaðsvirði. Hvaða áhrif hafa þær upplýsingar, meðal annars á afstöðu skattayfirvalda? Á Framsókn sér viðreisnar von? Í lok þáttar mun Guðni Ágústsson, fyrrverandi formaður Framsóknarflokksins, mæta á vettvang en þann 13. mars skrifaði hann grein þar sem hann kallar eftir endurreisn Framsóknarflokksins. Miðstjórn hans mun funda á Akureyri um helgina og í viðtalinu mun Guðni upplýsa hvað hann telji að þurfi að gera til þess að þessi elsti stjórnmálaflokkur nái vopnum sínum að nýju.

Bókaspjall: Þorskastríðin með Guðna Th. Jóhannessyni

AI Is Creating A Rare Opportunity For Investors. How Jim Roppel Is Playing It. | Investing With IBD

What's the deal with the Iran deal? | feat. Lt. Col. (Ret.) Jonathan Conricus & Behnam Ben Taleblu

Trump sta per invadere l’Iran? La diretta con Alessandro Orsini

Allah Will Not Change You Until…| Late Night Reflections #2

#126. - Er upptaka evru ógn við efnahag Íslands?

Kāpēc Latviešu uzņēmēji baidās riskēt? | Prudentia

20 Questions with Pastor Mike (Episode 62)

Historian Götz Aly - Young & Naive: Episode 553

Rymanowski, Parafianowicz: Bohater czy mitoman?

The Arab Case for Israel: History, Mythology, and Pathways to Peace

Ness 477 – Hva er egentlig sløsing?

#125. - Áslaug kveður, ESB-sumarið hefst

ZERO DISCUSSION #2 - PRUSINOWSKI, SROCZYŃSKI, ZALEWSKI, BURZYŃSKA

Számtalan üzenetet kapok oligarcháktól, ezekre én nem válaszolok – interjú Magyar Péterrel

🔴LIVE : Stanford India Conference 2026 | India–US at the Crossroads | K Annamalai | 11-05-2026

Nedjeljom u 2: Mozak je čudo

Двойное государство. Статус S09E41

LIVE: Meidas Host TESTIFIES Before CONGRESS

