#123. - Er kreppuverðbólga að skella á landinu?

Sveitarstjórnarkosningarnar, efnahagshorfur og áhrif stýrivaxta á heimili og fyrirtæki eru meðal þess sem tekið er fyrir í Spursmálum í dag. Þar fara þau Andrés Magnússon, fulltrúi ritstjóra á Morgunblaðinu, og Katrín Júlíusdóttir, ráðgjafi og fyrrverandi ráðherra, yfir helstu fréttir vikunnar og rýna í niðurstöður sveitarstjórnarkosninganna. Í síðari hluta þáttarins ræða þau Erna Björg Sverrisdóttir, aðalhagfræðingur Arion banka, og Konráð Guðjónsson, hagfræðingur og ráðgjafi, um stöðu efnahagsmála hér á landi, stýrivaxaákvörðun Seðlabanka Íslands og horfur á næstu misserum.