Birnir í Stúdíói 12 - Rabbabari á Rás 2

Rapparinn Birnir skaust fram á sjónarsviðið á síðasta ári sem einn heitasti ungi rapparinn í fjölmennri og frjórri senu þar sem samkeppnin er gríðarhörð. Birnir var gestur Atla Más Steinarssonar í Stúdíói 12 þar sem hann tók lögin „Út í geim“ og „Af hverju“.