Leiðbeinandi í Vinnu og virkni - Thelma Lind

Vinna og virkni býður upp á ótal tækifæri fyrir þá sem hafa áhuga á að starfa í fjölbreyttu umhverfi með skemmtilegu fólki. Vinnustaðir félagsins eru í Lækjarási, Bjarkarási og Ási vinnustofu. Thelma Lind starfar sem leiðbeinandi í Smiðjunni í Ási vinnustofu þar sem skapandi vinna fer fram. Við hvetjum alla til að horfa á myndbandið þar sem Thelma lýsir upplifun sinni af því að vinna sem leiðbeinandi í Vinnu og virkni.