Að sjá og skapa - Ungir og efnilegir á List án landamæra 2014

Þann 29. apríl 2014 var formleg opnun á sýningunni Að sjá og skapa - Ungir og efnilegir. Opnunin var í Listasafni Íslands sem bað í kjölfarið um að fá að láta sýninguna standa lengur eða til 12. maí. Sýningin er opin á opnunartímum safnsins frá kl. 11 -- 17 (5) Hvar: Listasafn Íslands, Fríkirkjuveg 7 Hvað: Að sjá og skapa -- Ungir og efnilegir Ungt fólk sýnir afrakstur listasmiðju í Listasafni Íslands. Innblástur verkanna var sóttur í sýningu safnsins, Form, litur, líkami: Háspenna/Lífshætta, yrlitssýningu á verkum Magnúsar Kjartanssonar. Nemendurnir fóru í vettvangsferð um Listasafnið og unnu verk í kjölfarið. Leiðbeinandi var Nikulás Stefán Nikulásson en samstarfsaðilar eru Hitt Húsið, Listasafn Íslands og Barnamenningarhátíð Reykjavíkur.