Blakkur covered by Sunny (Journey To Myself)

Original: Helgi Björnsson og Reiðmenn Vindanna Voice by Sunny Music by Peddy Stieglitz (Bandschmiede Frankfurt) Lyrics: Ég vaknaði fyrir viku síðan er vetrar nóttin ríkti hljóð og sá þar standa Blakk minn brúna í bleikri þorra mánans glóð. Svo reyst´ann allt í einu höfuð með opinn flipann og hneggjaði hátt og tók síðan stökk með strok í augum og stefndi heim í norður átt. Sú leið er erfið gamli garpur. Þú getur ei sigrað þau reginfjöll þó stælt sé þín bringa og fætur fimir þín frægðar saga senn er öll. Á grýttum mel þar sem geisar stormur með grimdar frost og hríðarkóf ég sé hvar þú liggur klárinn kaski með klakaðar nasir og sprunginn hóf Þú skildir mig einan eftir Blakkur. Nú enginn vinur dvelst mér hjá og enginn hlustar á mitt elliraus um æskustöðvarnar norðurfrá. En í brjósti mínu býr eirðarleysi, eykur og magnar sína glóð. Mitt úlfgráa höfuð hátt ég reisi og held í norður í þína slóð.