Skálmöld Og Sinfó - Valhöll
Original video made by Rafael Farias: • Video Lyrics: Hetja er fallin, höndin sár, Höfuðið klofið að strjúpa. Gróa þar síðan Baldursbrár, Berjalyng kroppar rjúpa. Valkyrjur sækja vígamenn, Völlurinn ataður blóði. Einherja mun þig Óðinn senn Útnefna, vinurinn góði. Hafinn á loft og traust er tak, Tekinn án nokkurra refja. Bergmálar víða vopnaskak, Við megum alls ekki tefja. Sannað sig núna hefur hann, Hetja og örlagavaldur. Kveðjum við þennan mæta mann, Maðurinn sá heitir Baldur. Valkyrjur nú valinn kanna, Velja menn til stórræðanna. Okkar þannig Bifröst bíður, Baldur hafri Þórs upp ríður. Yfir sjáum heiðna hrafna, Huginn, Muninn visku safna. Heimdallur mun hliðin opna, Höldum inn og beint til vopna. Einherjar um völlinn vaða, Valhöll, staður allra staða. Miðgarður kveður, magnlaus þá Mókaður um ég svamla. Núna ég horfi niður á Nautin við bæinn minn gamla. Bærist þar líf við Bæjartjörn, Balinn er umvafinn lyngi. Leika sér þarna lítil börn, Lífið það gengur í hringi. Að okkur nú Goðin gæta, Glaðir skulum kverkar væta. Mært hvern annan mætir getum, Mjöðinn drekkum, kjötið etum. Báðir tveir, Jarl Gunnar, Grímur, Glösin tæma, kveða rímur. Heimdallur mun hliðin opna, Höldum inn og beint til vopna. Einherjar um völlinn vaða, Valhöll, staður allra staða. Búnir undir Ragnarökin, Rekum sverðin út um bökin. Sárin gróa, sorgir bakka, Sálin heil, ég Óðni þakka.

Skálmöld Og Sinfó - Innrás/Árás

Skálmöld Og Sinfó - Dauði

Með Jötnum

Sinéad O'Connor e Roger Waters - "Mother"

SKÁLMÖLD - Niðavellir (Official Lyric Video) | Napalm Records

SABATON - Templars (Official Lyric Video)

Skálmöld Og Sinfó - Upprisa

Skálmöld & Sinfóníuhljómsveit Íslands -- Árás

Ullur

Skálmöld Og Sinfó - Loki

THIS WAS STUNNING | Skálmöld & Sinfóníuhljómsveit Íslands - Kvaðning | REACTION #iceland #reaction

SKÁLMÖLD - Vanaheimur (Official Lyric Video) | Napalm Records

Mr.Bean Making Celebrities Cry With Laughter NONSTOP!

Eivør Pálsdóttir: Tròdlabùndin (Trøllabundin) – 10.08.13

Með Fuglum

