Ormstunga í Þjóðleikhúsinu

https://leikhusid.is/syningar/ormstunga/ Orka og ferskleiki söngleikjaformsins mæta átakaþrungnum heimi Íslendingasagnanna Ormstunga er glænýr og ferskur íslenskur söngleikur byggður á Gunnlaugs sögu ormstungu, sígildri sögu sem er í senn spennandi, fyndin og hjartnæm. Höfundarnir eru af yngstu kynslóð leikhúslistafólks og ná með glæsilegum hætti að vinna úr menningararfi okkar í nútímalegu og heillandi formi. Verkið er skrifað í anda hins heimsfræga stórsöngleiks Hamilton, sem ruddi brautina fyrir kraftmikinn samruna sögulegra atburða og krassandi tónlistar.