Sundhöllin í Reykjavík.

Sundhöllin í Reykjavík er úti og innanhússundlaug við Barónstíg. Sundhöllin var vígð 23.03.1937. Það var Guðjón Samúelsson, húsameistari ríkisins sem teiknaði bygginguna. Ólafur Kalstað Þorvarðsson varð árið 1936 fyrsti forstjóri Sundhallarinnar. Árið 2013 var ákveðið að reisa útisundlaug við Sundhöllina. Heba Hert­ervig, Karl Magnús Karls­son og Ólaf­ur Óskar Ax­els­son hjá VA Arki­tekt­um hönnuðu laugina sem var opnuð árið 2017.