Galdrakarlinn í Oz - Bakvið Tjöldin á Æfingu!
Sígildur söngleikur fyrir alla fjölskylduna Galdrakarlinn í OZ er einn vinsælasti fjölskyldusöngleikur allra tíma. Sígilt ævintýri um Dóróteu sem leggur upp í langferð til Gimsteinaborgarinnar handan regnbogans. Raunveruleikinn er grár og tilbreytingarlaus, fólk vinnur mikið og brosir sjaldan. Dórótea þráir eitthvað annað, stórkostlegra og ævintýralegra, hana dreymir um landið handan regnbogans. Dag nokkurn gerir ofsaveður og hvirfilbylur feykir henni til ævintýralandsins Oz þar sem allt getur gerst. Dórótea er þó ekki fyrr komin en hún uppgötvar að hana langar aftur heim. Aðeins Galdrakarlinn í Gimsteinaborg getur hjálpað henni þangað. Á leið sinni til hans eignast hún þrjá vini, fuglahræðuna sem hefur engan heila, ljónið sem skortir hugrekki og tinkarlinn sem vantar hjarta. Saman lenda þau í ótal skemmtilegum en hættulegum ævintýrum þar sem við sögu koma góða Norðannornin, vonda Austannornin og urmull af vættum og kynjaverum; valmúar, snjófólk, landsfeður, krútt, pússarar, töffarar, vinkar, draugar, tjúttarar, handsnyrtar og fiðlarar. Ævintýrið um Galdrakarlinn í Oz er í tölu frægustu og útbreiddustu barnabóka heims. Höfundurinn Frank Baum (1856--1919) skrifaði fjölda bóka um landið Oz og íbúa þess. Það jók enn á frægð Galdrakarlsins í Oz þegar Hollywood gerði söngvamynd árið 1939 eftir sögunni. Myndin var ein fyrsta litkvikmyndin í Hollywood og skaut hinni 16 ára Judy Garland eftirminnilega upp á stjörnuhimininn.

一个视频了解:习近平和张又侠的全部恩怨, 为何反目?

Live from NWT Ranworth Broad

Galdrakarlinn í Oz - Bakvið Tjöldin

Leitin af Billy þáttur 1

Landsbyggðir - Gamlar vegagerðarmyndir

The Wizard of Oz | 75th Anniversary "Dorothy Meets The Cowardly Lion" | Warner Bros. Entertainment

Bortbytingen klass 7

Bak við tjöldin - sýning verður til!

Incredible Safari Moments Caught on Camera

Bakvið tjöldin 1. þáttur - Þorri og Þura, vinir í raun

94 Year-Old Grandmother Living Alone at the Edge of the World Far From Civilization

Galdrakarlinn í OZ á Grímunni

The Wizard of Oz in 10 Minutes (Home Movie)

Bakvið tjöldin á Fiskideginum

When Animals Surprise Photographers in the Sweetest Way! 😍

Hópkaup - Á bakvið tjöldin

Dentro de uma fábrica de açúcar moderna: da cana-de-açúcar fresca ao açúcar cristalino puro.

Árshátíð Síðuskóla 2022 - 4. bekkur: Blái hnötturinn

VJ LOOP NEON Pink Orange Tunnel Abstract Background Video Simple Lines Pattern 4k Screensaver

