Þetta land fyrir blandaðan kór - Jónas Ingimundarson - 2026

Fyrir stuttu uppgötvaði ég áhrifamikið lag sem Jónas Ingimundarson samdi árið 1976 fyrir Karlakórinn Fóstbræður. Ég tók mér það fyrir hendur að kynnast laginu, ljóðinu og upprunalegu útsetningunni og útbúa nótur fyrir blandaðan kór eða samsöng. Hér er afraksturinn og vona ég að hann komi ykkur söngvurum að góðum notum. Þann 30. maí 2026, á afmælisdegi Jónasar Ingimundarsonar, verður haldin tónlistarveisla í Salunum í Kópavogi til heiðurs og minningar um þennan merka mann, samhliða stofnun styrktarsjóðs í hans nafni. Njótið vel og látum góðar minningar um þennan frábæra tónlistarmann lifa áfram. Fleiri upplýsingar um tónleikana: https://salurinn.kopavogur.is/event/m... Þetta land Tónlist: Jónas Ingimundarson Ljóð: Kristján frá Djúpalæk útsetning fyrir SATB: Alexandra Chernyshova Ljóðið „Þetta land“ úr ljóðabókinni Sólin og ég (1975) Þetta land geymir allt, sem ég ann. Býr í árniði grunntónn míns lags. Hjá þess jurt veit ég blómálf míns brags. Milli bjarkanna yndi ég fann. Ber mér útræna ilminn frá sjó. Blærinn angan frá lyngi í mó. Djúpa hugró á fjöllum ég finn. Meðal fólksins er vettvangur minn. Þetta land skamma stund bjó mér stað. Ég er strá í þess mold. Ég er það.