Dagur 26 - Ljós, lækning og kærleikur

Í þættinum höldum við áfram að skoða frumkirkjuna í rómverska heimsveldinu; sjálfsskilning hennar og nálgun á verkefnið. Allt var gjörbreytt; nú bjó Guð ekki lengur í húsi gerðu af manna höndum, heldur í hjörtum fólks.  Frumkirkjan var opin og alþjóðleg; enginn milligöngumaður nema Jesús. Kærleikur og þjónusta einkenndu hennar starf, og hún hafði djúp samfélagsleg áhrif þrátt fyrir ofsóknir. Þátturinn tengir þetta við kirkjulegt hlutverk í dag: að sýna kærleika Guðs í orði og verki.  Tónlist: Hjalti Gunnlaugsson www.halldorlar.is (http://www.halldorlar.is) [email protected] (mailto:[email protected])