Bak við regnbogabrúna | Galdrakarlinn í Oz

Söngtextinn: Ef heimurinn virðist riða allur þegar regnið fellur allt um kring. — Opna himnarnir töfrahlið. Ef sólin laumar sér milli skýja, lifnar þessi hlýja tilfinning — leiðir þig á önnur mið. Framhjá morgunstjörnunni, framhjá tímans þunga nið. Bak við regnbogabrúna blika lönd. Þeim sem lýst er í ljóðum — langt út við sjónarrönd. Bak við regnbogabrúna birtir senn. Þar í draumheimum djarfir draumarnir rætast enn. Ó, ef ég mætti óska mér þess eins að geta flogið burtu héðan. Að uppsprettu sem aldrei dvín og ef þið viljið leita mín, ég bíð á meðan… … bak við regnbogabrúna. Berst um veg fugl á heiðbláum himni — hversvegna ekki ég? Ef fuglinn getur fundið veg Og fengið tilgang — því þá ekki ég?