Fjallavatnið rétt feðrað - Steinn Kárason tekur Fjallavatnið
Króksarinn og garðyrkjufræðingurinn góðkunni Steinn Kárason samdi Fjallavatnið, lag og ljóð sem um langt árabil hefur verið baráttusöngur knattspyrnudeildar Tindastóls og notið hefur vinsælda meðal garðyrkjufræðinga. Þetta kom fram hjá Steini í spjalli í morgunkaffi í Bakaríi Sauðárkróks. Nokkrir fastagestir sátu við spjall yfir rjúkandi kaffibolla laugardaginn 10. október þegar Frímann Guðbrandsson skaut því inn í umræðurnar að Steinn, sem þarna sat væri maðurinn sem samdi Fjallavatnið. Þetta voru nýjar upplýsingar fyrir suma kaffigesti s.s. Ómar Braga Stefánsson og Maríu Björk Ingvadóttur, en meðal annarra kaffigesta voru Aadnegard bræðurnir Knútur og Sigurður, Bjössi á Stöðinni, Frímann og eiginkonur þeirra. Um tilurð lags og texta urðu fjörugar umræður. Lagið samdi Steinn á heimili foreldra sinna Kára Steinssonar og Distu á Hólavegi 23, líklega haustið 1970, frekar en vorið 1971, en þá var höfundurinn 16 ára. „Á þessum tíma samdi ég fjölda laga,“ segir Steinn, meðal annars jólasálminn Helga himneska stjarna. „Fjallavatnið, bæði lag og ljóð urðu til samtímis á mjög stuttum tíma. Þegar lag og ljóð var fullgert hjá mér kom í heimsókn til mín æskufélaginn, Nonni, - Jón sonur Bjössa rafvirkja og Rúnu. Við félagarnir sungum lagið vandlega til,“ segir Steinn, „ég með minni alkunnu englarödd og Jón með sinni sérstöku rödd sem gaf laginu einstakan unaðs og gleðiblæ“. Fjallavatnið hefur náð miklu flugi og hefur ævinlega verið sungið með miklum gleðibrag, aldrei sérlega hátíðlega. Knattspyrnukappar í Tindastól hófu lagið í öndvegi sem sinn baráttusöng, reyndar bjagað og rangt hefur verið farið með ljóðið. Fjallavatnið varð feykivinsælt meðal garðyrkjufræðinga á Garðyrkjuskólanum og er sungið við mikinn fögnuð þegar tækifæri gefst í þeirra hópi. Fjallavatnið er oftast sungið tvisvar til fjórum sinnum í röð en stundum í hálftíma eða lengur eftir atvikum. Í lokin stóð Steinn svo upp og söng við fögnuð viðstaddra, stutta útgáfu af hinu margrómaða Fjallavatni. Lagið er því hér með rétt feðrað og þeim misskilningi eytt að einhver annar en hinn góðkunni Steinn Kárason hafi samið Fjallavatnið. Hér er upptaka Maríu Bjarkar Ingvadóttur af Fjallavatninu í Sauðárkróksbakaríi laugardaginn 10. október. /Fréttatilkynning

Mr.Bean Making Celebrities Cry With Laughter NONSTOP!

EXCLUSIVE 🥹✨ At home with Vivi & Tim after the reunion ❤️🏡 | The Bachelors 2026 🌹

Grandma Guitarist Starts to Play Johnny Cash and Shocks The Crowd

Emergency Door Opening Without Key Just 2 minute 😱 Billions Of People Don't Know This Secret!

PIRDUNIMI

Italian PM Meloni’s Awkward NATO Dinner Snub Amid Trump Feud

My Dog Got Jealous Of The Baby… Then This Happened 😂🐶

Iran Shocked! A female US F16 fighter jet pilot took off at full speed in an emergency situation

Söngperlur Ellyjar og VIlhjálms

Princess Of Boogie Woogie Delights Everyone

25 UNVERGESSLICHE Fairplay-Momente im Fußball

The Best Western Opening Scene Ever

Incredible Safari Moments Caught on Camera

The Benny Hill Show - Cruise on the S.S. Rumpo (1971)

Amazing Takeoff at Saba Airport! Pilot Risks Everything on the World’s Shortest Runway

Funniest Moments In Football

Somali Pirates Made One Huge Mistake — They Boarded a Ship With Ex-U.S Marines

Unbelievable Workers | Working with Talented Engineers #46 #fail #adamrose #smartworkers

When a Cat Teaches a Baby How to Talk… And It Gets Hilarious 😹👶

