Gísla saga Sigurgeirssonar um Óskar Pétursson!

Óskar Pétursson söngvari og bifvélavirki varð sjötugur á jóladag sem fór ekki framhjá lesendum Akureyri.net. Hátíðarviðtal Rakelar Hinriksdóttur, sem birtist í fjórum hlutum um jólin, vakti mikla athygli enda bráðskemmtilegt. Gísli Sigurgeirsson sjónvarpsmaður sendi Akureyri.net þetta skemmtilega myndband til að kóróna umfjöllun um söngvarann ástsæla og síkáta. Takk Gísli!