Tónaútgáfan - Glókollur

Hljómsveit Tónaútgáfunnar leikur lagið Glókollur á heiðurstónleikum á Akureyrarvöku 2022 í Hofi. Lagið kom fyrst út á smáskífu með hljómsveitinni Póló og Bjarki, sem Tónaútgáfan gaf út 1967. Stefán Elí Hauksson, sonarsonur Pálma Stefánssonar, sem var hljómsveitarstjóri Póló og eigandi Tónaútgáfunnar, syngur. Hljómsveitina skipa: Eyþór Ingi Jónsson: Orgel Haukur Pálmason: Trommur Kristján Edelstein: Gítar Magni Ásgeirsson: Gítar Sumarliði Helgason: Bassi